nóvember 25, 2003
Varúð hætta á ferð!
Fyrir þá sem hafa eitthvað fylgst með blogginu mínu muna sjálfsagt eftir klikkaða pðítsusendlinum sem kom með æátum inn til mín. Hvað um það ég sá hann aftur og í þetta sinn á göngum KHÍ þannig að kæru samnemendur gætið ykkar ef þið sjáið mann í úlpu sem merkt er Hróa Hetti því hann er ekki jafn saklaus og hann lítur út fyrir að vera.
nóvember 20, 2003
Slóð inn á skilasíðuna
Hér kemur slóðin inn á skilasíðuna mína
Hvert er málið?
Hvað er það að hrúga inn endalaust af verkefnum síðustu vikurnar í skólanum? Ætti maður ekki núna að hafa tíma síðustu vikuna til þess að anda og undirbúa sig fyrir próf. Ég verð allavega að segja að ég verð voða fegin í lok næstu viku þegar þessa verkefni verða afstaðin. Annars er lítið að gerast þessa dagana annað en verkefnavinna og aðeins meiri verkefnavinna......
nóvember 18, 2003
Jæja já
Þetta var mögnuð helgi, voða róleg og þægileg. Ég er alveg úthvíld og hress, Jói hefði samt alveg mátt vera lengur. Ég verð nú að viðurkenna að ég gréti það ekki þótt hann hætti í Kárahnjúkum og færi að vinna í bænum. Pabbi lifði af helgi í borginni og ætlar meira að segja að vera hér um jólin sem er mikil framför. Hann sem vill alltaf vera heima á Sigló í paradísinni eins og hann segir sjálfur. Hann skilur alls ekki hvað það er sem togar alla í borgina, sem er fínt því það er svo gott að geta kíkt í heimsókn í fjörðinn.
nóvember 14, 2003
Hæ hæ
Ég er nánast búin með vefinn minn í sagnfræði það eina sem er eftir eru myndatextarnir. Ég ætla nú samt að setja inn slóðina og þeir sem vilja geta litið á söguna um hann Fidda. Vonandi líst ykkur ágætlega á þetta. Annars er bara allt í góðu hjá mér. Jói er heima núna og í kvöld er ég með alla fjölskylduna í mat því pabbi er að mæta í bæinn í kvöld. Hann er nú ekkert voða hrifinn af þessari borgarmenningu get ég sagt ykkur og minnir oft dálítið á Beverly Hillbillies þegar þau mættu í borgina í fyrsta sinn. Hann kemur nú samt reglulega enda verður hann nú aðeins að sjá afkvæmin sín en systur hans búa líka á höfuðborgarsvæðinu. Þið ættuð að vera með honum í umferðinni, það er rosalegt og vissara að halda sér fast því þú getur engan vegin vitað hvenær hann tekur næst beygju!!!!!!
nóvember 12, 2003
Endalaus vinna!
Ég er að drukkna í öllu sem ég þarf að gera og get alls ekki séð neinn endapunkt á þessu. Djöfull væri nú gott að taka 2-3 daga í frí, bara til að liggja í leti og borða fullt af ruslmat!!!!
nóvember 04, 2003
Hættan við að panta pítsu!!!
Það er nú ekki alltaf allt jafn saklaust og það lítur út fyrir að vera eins og t.d. sú athöfn að panta pítsu. Þegar ég kom að norðan á sunnudag þá ákváðum ég og Jói að panta okkur pítsu en það varöð nú ekki alveg áfallalaust. Jú pítsan var pöntuð og hún kom í hús en ekki alveg á þann hátt sem pítsu gera yfirleitt. Pítsasendillinn hreinlega braust í gegnum heilt á leið sinni inn í blokkina, hann braut rúðuna í millihurðinni inn í blokkina. Hann sagðist aðeins hafa rekið sig í en það munaði nú ekkert um það því glerið fór í þúsund mola og skaust alla leið niður í kjallara og langleiðina upp á næstu hæð. Það er eins gott að þessi maður reki sig ekki í margt. Þetta var nú heldur ekki búið enn því sendillinn missti sig alveg og argaði og gargaði sem benti nú til þess að hér væri klikkhaus á ferð. Til að toppa þetta allt saman þá varð hann vitlaus þegar ég í sakleysi mínu ætlaði að borga með pening vegna þess að hann átti ekki skiptimynt!!!! Hafið því varan á þegar pítsa er á leið til ykkar.........
Þessi sendill var frá Hróa Hetti en ég get róað ykkur með því að mér var sagt að hann hefði verið rekinn og því ætti okkur að vera óhætt að panta þar í framtíðinni. Þeir hjá Hróa voru nú líka skjótir að bregðast við og gluggaviðgerðamaður var mættur á svæðið eftir smá stund og nýtt gler kom strax næsta morgun. Það mætti halda að þeir væru alltaf að lenda í þessu!
Það varð því ekkert úr þessu kósý kvöldi mínu þar sem ég ætlaði að leggjast upp í sófa og borða góða pítsu því loksins þegar þessu var öllu lokið var pítsan orðin skítköld og ég komin í heitt bað til að róa mig niður enda varð ég alveg fokíll!!!!! Þeir hjá Hróa ætla nú samt að bæta mér þetta upp og láta mig fá nýja pítsu og brauðstangir þegar mig langar næst í pítsu.
Ætti ég að leggja í að fá sent????? Ég veit ekki...........
Þessi sendill var frá Hróa Hetti en ég get róað ykkur með því að mér var sagt að hann hefði verið rekinn og því ætti okkur að vera óhætt að panta þar í framtíðinni. Þeir hjá Hróa voru nú líka skjótir að bregðast við og gluggaviðgerðamaður var mættur á svæðið eftir smá stund og nýtt gler kom strax næsta morgun. Það mætti halda að þeir væru alltaf að lenda í þessu!
Það varð því ekkert úr þessu kósý kvöldi mínu þar sem ég ætlaði að leggjast upp í sófa og borða góða pítsu því loksins þegar þessu var öllu lokið var pítsan orðin skítköld og ég komin í heitt bað til að róa mig niður enda varð ég alveg fokíll!!!!! Þeir hjá Hróa ætla nú samt að bæta mér þetta upp og láta mig fá nýja pítsu og brauðstangir þegar mig langar næst í pítsu.
Ætti ég að leggja í að fá sent????? Ég veit ekki...........
nóvember 03, 2003
Tilraun 2 tókst
Hæ hæ ég er mætt aftur í borgina eftir fína helgi fyrir norðan, hefði samt alveg verið til í að vera aðeins lengur. Ég og Jói drifum okkur á fimmtudaginn á Krókinn og komumst klakklaust á sumardekkjunum, en núna eru vetrardekkin komin undir. Við höfðum nóg að gera alla helgina, en það var pabbahelgi hjá Jóa svo við vorum með Jón Daníel sem er nú að verða 10 mánaða og algjört krútt. Við kíktum á Sigló á föstudaginn og gistum þar eina nótt. Pabbi var voða feginn að við komum en mamma var veik svo hún lá aðallega undir teppi greyið. Við fórum síðan aftur á Krókinn á laugard. Ég verð nú samt að viðurkenna að ég er hálf þreytt eftir þetta enda ekki mín sérgrein að vakna kl. 6 en þá fer Jón Daníel á fætur.